Vitundarvakning um umhverfismál hefur aukið verðmæti endurnýjanlegrar raforku. Á fundinum ræddu sérfræðingar um þessi verðmæti frá ýmsum hliðum. Greint var frá hver áhrif loftslagsbreytingar eru á orkuvinnslu og nýtingu íslenska kerfisins. Endurnýjanleg orka er orðin eftirsótt um allan heim.
Arðgreiðslugeta Landsvirkjunar er sögð vera tíu til tólf milljarðar króna á ári. Það hlýtur að merkja að fjárhagslegur styrkur þessa ríkisfyrirtækis hefur aukist á liðnum árum. Sagðar eru líkur á að Landsvikrjun hafi því bolmagn til að greiða allt að hundrað og tíu milljarða króna til ríkissjóðs á árunum 2020 til 2026.
Þessar upplýsingar koma inn í umræðuna um stöðu ríkissjóðs nú þegar stjórnamyndunarviðræður standa yfir. Vera má að þarna eygi stjórnmálamenn leiðir til að fjármagna gefin kosningaloforð.
Þá má geta þess að vísbendingar eru um að andrúmsloftið á Íslandi í garð orkufrekrar stóriðju sé breytt henni í óhag. Aukin andstaða er meðal almennings gegn stóriðju. Þá er líkast til ráðlegt að horfa annað. Til dæmis til orku til gagnavera.