Fjárhagsleg endurskipulagning langt komin

Fjárhagsleg endurskipulagning WOW air er komin mun lengra en greint hefur verið frá í fjölmiðlum til þessa. Meirihluti skuldabréfaeigenda og lánardrottna hefur þegar samþykkt að breyta skuldum sínum í hlutafé en einnig eru áform WOW air um að fá inn um 5 milljarða króna í nýtt hlutafé til fjármögnunar flugfélagsins á lokametrunum. DV.is greinir frá og segist hafa áreiðanlegar heimildir fyrir.

Samkvæmt heimildum DV mun bandaríska fjárfestingafélagið Indigo Partners, sem hætti við að fjárfesta í WOW air fyrir tæpri viku en er nú komið aftur að borðinu, að öllum líkindum leggja til bróðurpartinn af þessum fjármunum og yrði með því stærsti hluthafi flugfélagsins.

Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, sagði í gær að vegna slæmrar stöðu væri nauðsynlegt að hafa hraðar hendur í leit að nýju hlutafé sem miði að því fjármagna flugfélagið þar til það nær stöðugleika til langframa. Ef satt reynist að fjárhagsleg skipulagning á WOW air sé þetta langt komin væri um ótrúlegan viðsnúning að ræða, enda staðan þannig fyrir örfáum dögum að ekkert annað en gjaldþrot virtist blasa við flugfélaginu.