Samkomulag er í höfn á milli ríkisstjórnar Grikklands og lánardrottna þeirra um þriggja ára fjárhagsáætlun ríkisins að því r fréttaveitan AFP fullyrðir og hefur eftir heimildarmanni úr grísku ríkisstjórninni.
Verð á hlutabréfamörkuðum Evrópu féll nokkuð í morgun þegar tíðindin spurðust út.
Stjórnvöld í Grikklandi hafa skuldbundið sig til þess að skila 0,25% halla af útgjöldum ríkissjóðs á fjárlagaárinu 2015 og skila þar að auki tekjuafgangi upp á 0,5% á næsta ári. Ekki er talið að grípa þurfi til frekari fjárhagsaðgerða til þess að ná því markmiði. Afgangur ríkissjóðs á svo að vera 1,75% árið 2017 og 3,5% 2018.
Samkomulagið hjálpar Grikkjum við að fá þriðju útborgun af neyðarláni sem gerir þeim kleift að greiða 3,4 milljarða evra, jafnvirði um 500 milljarða íslenskra króna, inn á lán sem frá Seðlabanka Evrópu sem er á gjalddaga 20. ágúst.