Viltu breyta til? Flytja í rólegheit og vera þinn eiginn herra? Þá er gott tækifæri í Skotlandi þessa dagana en þar er eyjan Inchmarnock nú til sölu. Ásett verð er 1,4 milljónir punda en það er álíka og þarf að greiða fyrir ágætt einbýlishús í Lundúnum. En með eyjunni fylgja 660 ekrur lands, ferja, íbúðarhús og gripahús.
Aðeins tekur 10 mínútur að sigla út í eyjuna frá Rothesay svo hún er ekki alveg úr alfaraleið. Áður fyrr bjuggu allt að 46 manns í eyjunni en síðasti íbúinn, bóndi, flutti þaðan 1986. Síðan 1999 hefur eyjan verið í eigu hjóna sem hafa notað hana sem sumarleyfisstað.
Á eyjunni eru fjögurra herbergja hús í mjög góðu standi, nokkrar yfirgefnar byggingar, bóndabær, smá skógur, höfn og auðvitað ferjan góða.
Saga eyjunnar er einnig athyglisverð en víkingar fóru þar stundum um ránshendi og hún var notuð til æfinga af hersveitum Bandamanna fyrir innrásina miklu í Normandí í Frakklandi 1944.
Því er bara að bregðast skjótt við og kaupa eyjuna áður en breski kaupsýslumaðurinn Jim Ratcliffe fréttir af henni. Hann hlýtur nú að hafa áhuga á góðu landi og eyjum í heimalandinu eins og hér á landi.