Fjárfesting stóreykst í sjávarútvegi

Á sjávarútvegsdeginum sem haldinn verður í Hörpu á morgun, 8. október verða nýjar afkomutölur greinarinnar birtar og fjallað um stóraukna fjárfestingu í greininni á allra síðustu árum. 

Hvað er að frétta? er yfirskrift dagsins og boðið verður upp á fjölbreyttar sögur úr greininni, tíðindi, greiningar og spáð í framtíðina. Á fundinum kemur m.a. fram að ný og gjöful mið fundust nýverið við Ísland þar sem dýrmætt sjávarfang er að finna.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, ávarpar fundinn  og nýjar tölur um afkomu greinarinnar verða birtar en það eru fyrstu heildarniðurstöður úr rekstri sjávarútvegsfyrirtækja vegna ársins 2014. Þá verða einnig birtar nýjar upplýsingar um skattgreiðslur sjávarútvegsfyrirtækja úr gagnagrunni Deloitte. Grunnurinn inniheldur upplýsingar úr ársreikningum félaga sem hafa yfir að ráða hátt í 90% af úthlutuðum aflaheimildum. Jónas Gestur Jónasson, löggiltur endurskoðandi og meðeigandi Deloitte ehf. kynnir niðurstöðurnar en mikil aukning er á fjárfestingu í skipum, fasteignum og búnaði milli ára.