Fjárfestar fidu veðja á hellisheiðina

Sprotafyrirtækið geo Silican hefur verið talsvert í fréttum undanfarin tvö ár með frumkvöðulinn Fidu Abu Lebdeh í brúnni. Fyrirtækið framleiðir hágæða kísil- og heilsuvörur. Fida Abu, sem alinn er upp í Jerúsalem, er einn gesta Jóns G. í kvöld og í bráðskemmtilegu spjalli þeirra segist hún elska að vera uppi á Hellisheiði, þar sem varan er unninn, og finna fyrir kraftinum á heiðinni. Nýir fjárfestar komu inn í félagið á dögunum með 40 milljónir kr. í nýtt hlutafé en stefnt er að því að auka hlutaféð um 80 milljónir í viðbót eða samtals um 120 milljónir króna. Fida fluttist til Íslands frá Jerúsalem á unglingsaldri.