Fjárfesta fyrir 6,2 milljarða í alvotech

Jap­anska lyfja­fyr­ir­tækið Fuji Pharma hef­ur fjár­fest í Al­votech fyr­ir um 50 millj­ón­ir Banda­ríkja­dala, eða sem nem­ur  6,2 millj­örðum króna, en um er að ræða 4,2% eign­ar­hlut í fyr­ir­tæk­inu. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá fé­lag­inu. Miðað við kaup­verðið er lyfja­fyr­ir­tækið metið á rúm­lega 147 millj­arða króna.

Al­votech og Fuji Pharma til­kynntu ný­lega um sam­starf þar sem það fyrr­nefnda þróar og fram­leiðir líf­tækni­lyf fyr­ir Jap­ans­markað, sem er þriðja stærsta markaðssvæði heims. Í til­kynn­ing­unni seg­ir að inn­koma Fuji Pharma í hlut­hafa­hóp Al­votech muni styðja enn frek­ar við sam­starf fyr­ir­tækj­anna á næstu árum og markaðssetn­ingu líf­tækni­lyfja um all­an heim.

Nánar á

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2018/12/17/kaupa_fyrir_6_2_milljarda_i_alvotech/