Fjarar undan vg

Eftirgrennslan Hringbrautar í norðausturkjördæmi bendir til þess að þaðan sé nokkurra tíðinda að vænta í komandi kosningum.

Það eru straumar sem skoðanakannanir á landsvísu ná ekki endilega að fanga.

Stærstu tíðindin eru að Vinstri græn skynja fylgistap að undanförnu þrátt fyrir tölur í könnunum sem taka til alls landsins. Þar kemur ýmislegt til.

Í fyrsta lagi kusu margir framsóknarmenn Vg í síðustu kosningum vegna veru Sigmundar Davíðs í oddvitasæti hjá Framsókn. Þeir snúa nú aftur heim.

Í öðru lagi munu margir kjósendur á Akureyri snúa sér annað, þar sem enginn bæjarbúi er í efstu sætum eða þingmannsefni.

Í þriðja lagi hefur Steingrímur J. Sigfússon, oddviti listans, alls ekki sama persónufylgi og eitt sinn var, einkum á Akureyri.

Þá þykir talsverður menntamannablær á listanum og lítil tengsl við atvinnulífið, sem jafnan þykir löstur í landsbyggðarkjördæmi.

Á þessu græða Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn. Samfylkingin virðist standa æ sterkar á Akureyri og þá ekki aðeins vegna þess að ferskur blær stendur af Loga Einarssyni. Listinn þykir óvenjuvel mannaður að öðru leyti. Þá fær flokkurinn talsvert af því fylgi sem Björt framtíð naut í langstærsta bæjarfélaginu.

Sjálfstæðisflokkurinn siglir nokkuð lygnan sjó með Kristján Þór Júlíusson við stjórnvölinn. Þótt hann þyki ekki aðsópsmikill þá er hann skipulagður og vinnusamur, með traust og duglegt bakland, í góðum tengslum við atvinnulífið og fer það sem hann ætlar sér. Flokkurinn gæti misst eitthvað til Framsóknar frá síðustu kosningum en græðir meira en aðrir á falli Viðreisnar.


„Píratar eru í óvissu um sína stöðu. Oddvitinn er ekki afgerandi og líklegra er talið að flokkurinn missi fylgi frá síðustu kosningum fremur en að safna til sín nýju liði. Viðmælendur telja helmingslíkur á að Píratar haldi þingmanni sínum.“

Að sama skapi vantar inn í þingmannaspá.

P – helmingslíkur á einum manni.
Í norðausturkjördæmi eru tíu þingenn, þar af einn jöfnunarmaður.

Niðurstaða kosningaspekúlanta í kjördæminu er þessi:

A – enginn þingmaður
B – einn þingmaður, með ágæta von um annan
C – enginn
D – tveir til þrír menn
F – enginn
M – einn maður
R – enginn
S – tveir menn með von í þeim þriðja.
V– tveir menn með veika von um uppbótarsæti