Fjár­fest í skugga ta­prekstr­ar

Þann 6. nóv­em­ber í fyrra tók stjórn Ísland­s­pósts end­an­lega ákvörðun um að ráðast í um­fangs­mikl­ar fram­kvæmd­ir við hús­næði fyr­ir­tæk­is­ins að Stór­höfða 21. Þar er um að ræða stækk­un á hús­næði fyr­ir­tæk­is­ins og nem­ur viðbót­in 1.100 fer­metr­um eða tæp­lega 2.000 fer­metr­um með milli­gólfi.

Sam­kvæmt niður­stöðu útboðs sem Rík­is­kaup héldu utan um nem­ur heild­ar­bygg­ing­ar­kostnaður við fram­kvæmd­ina tæp­um 700 millj­ón­um króna. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Ísland­s­pósti er kostnaður við inn­rétt­ing­ar í hús­næðinu inni í þeirri upp­hæð en ekki kaup­verð mögu­legs tækja­búnaðar, en ákvörðun um fjár­fest­ingu í búnaði hef­ur ekki enn verið tek­in. Þá seg­ir í svari fyr­ir­tæk­is­ins til ViðskiptaMogg­ans að gert sé ráð fyr­ir að áætlan­ir við fram­kvæmd­ina muni stand­ast.

At­hygli vek­ur að fyr­ir­tækið hafi ráðist í jafn­um­fangs­mikla fram­kvæmd og þessa í lok síðasta árs í ljósi þess að í sept­em­ber síðastliðnum varð rík­is­sjóður að leggja Ísland­s­pósti til 500 millj­ón­ir króna í formi 12 mánaða láns í þeirri viðleitni að styrkja lausa­fjár­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins. Var lán­veit­ing­in veitt með fyr­ir­vara um heim­ild í fjár­lög­um.

Nánar á

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2018/11/01/fjarfest_i_skugga_taprekstrar/