Búið er að opna Holtavörðuheiði en þar er nokkur snjóþekja. Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum en annars er hálka eða hálkublettir á Suðurlandi.
Hálka eða hálkublettir eru víða á Vesturlandi og hálka á Bröttubrekku. Á Snæfellsnesi er flughálka frá Búðum í Hellna.
Á Vestfjörðum er hálka og snjóþekja. Ófært er frá Brjánslæk og yfir Klettsháls.
Á Norðurlandi er hálka og snjóþekja á vegum en ófært er á Þverárfjalli og Mývatnsöræfum. Þungfært er á Siglufjarðarvegi frá Ketilás í Siglufjörð.
Á Austurlandi er ófært um Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði. Snjóþekja og skafrenningur er á Fagradal og Fjarðarheiði en hálka og skafrenningur á Oddsskarði. Autt er víða með suðaustur ströndinni en þó eru hálkublettir á köflum og jafnvel skafrenningur.
Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.