Nú þegar fé fer að tínast af fjalli hefst árleg umræða um bága stöðu sauðfjárræktar á Íslandi. Framsóknarflokkarnir þrír sem sitja að völdum hafa ákveðið að hlaupa undir bagga með bændum. Til að rökstyðja aðgerðirnar hefur starfshópur fjallað um málið og skilað tillögum.
Baldvin Jónsson, sem til margra ára var helsti málsvari íslensks lambakjöts á Bandaríkjamarkaði, las tillögurnar og hafði eftirfarandi um málið að segja á Facebook:
“ Í mörg ár hef ég verið mikill aðdáandi bænda og þeirra mikilvæga starfi sem landvörslumenn landsins okkar fagra. Og er enn. Eftir að ég fluttist aftur heim frá Ameríku er mér að líða verr og verr með stöðu bænda og afkomu þeirra. Sérstaklega finnst mér óþægilegt að finna að bændur eru að missa sjálfstraustið og það eru vond tíðindi.
Var í morgun að lesa undarlega skýrslu sem skrifuð var fyrir Ráðuneyti landbúnaðar um útflutning á lambakjöti. Þetta er virkilega fallegt plagg góðar myndir og einstaklega vel prentað sem hefur vafalaust kostað milljónir. Tel mig vita um að minnstakosti 10 sambærilegar á síðustu árum. Innihaldið er vægast sagt dapurlegt. Meira og minna safnað sama upplýsingum um staðreyndir sem liggja víða í kerfinu og hver sem er í Ráðuneytinu hefði getað safnað saman.
En að bera saman íslenskt lambakjöt við Næyja Sjáland og heimsmarkaði er svo sorglegt. NS framleiða á 3 klukkustundum það magn sem íslenskir bændur geta selt á erlenda markaði! Íslenskt lamb hefur algera sérstöðu, er af stofni sem hvergi annarsstaðar finnst, lífaldur 5 til 6 mánuðir er sérstaða, fituinnihald annað og velferð dýra höfð að leiðarljósi í öllu ferlinu. Að skýrslan sýni ekkert framá möguleika og tækifæri er dapurlegt. Dæmigert fyrir fjármálasnillinga sem horfa bara á kennitölur og krónutölur sem þeir fá uppí hendur en horfa sjaldan eða aldrei á heildarmyndina. Þetta er gott dæmi um það. Fækka húsum? Þeim var fækkað fyrir rúmlega 20 árum úr 35 í 8. Ekki hækkaði það afurðaverð til bænda jafnvel þó Byggðastofnun hafi veit 35 milljóna styrk til tveggja stöðva með sláturlínu sem áttu að auka afköstin.
Bændur, þið og neytendur eruð vinir, á milli ykkar og okkar
er órjúfanlegur þráður sem við getum treyst og þurfum nú svo sannarlega styrkja böndin áður en þau slitna. Búvörusamningur er barn síns tíma. Nú eiga bændur og neytendur að gera sín á milli fjárfestingasamning sem þjónar hagsmunum beggja og styrkir stöðu landsins í heild sinni jafnt á heimamarkaði sem og hér heima. Þið eruð fullkomnir landvörslumenn sem munuð áfram gæta þess að landinu verði haldið í byggð og auðlindir landsins nýttar einsog þið hafið gert frá landnámsöld. Þið aukið enn frekar gæða allra afurða sem framvegis verða vottaðar á grundvelli sjálfbærrar þróunar og lífræannar ræktunar þar sem því
verður við komið. Það mun gleðja neytendur og fylgja eftir lýðheilsustefnu þjóðarinnar og verða þar með hluti af forvarnarstarfi heilbrigðisþjónustunnar. Við treystum ykkur fullkomlega til að viðhalda stofnum búfjár sem mætti telja vera í útrýmingarhættu samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.
Þið erum með öflugustu landagræðslu mönnum og nú ætti að setja þjóðinni það metnaðarfulla markmið að sex til áttfalda beitarland á næstu 15 árum í samvinnu við fagfólk stofnana.
Ekkert af ykkar afurðum eiga heima undir hatti heimsmarkasverða frekar en Rolls Royce bílarnir. Þið eruð með allt aðrar afurðir sem flestar standast ströngustu kröfur um gæði það veit ég sem kom 14 íslenskum afurðum í gegnum eitt þrengsta nálarauga verslana í heiminum og var og er enn stoltur af. Allt afurðir sem aldrei hafa verið fluttar út áður.
Köstum gömlum aðferðum þið eigið hráefnið sem við viljum borða og margir aðrir. Það er hægt að auka útflutning á fersku vottuðu kjöti á erlenda markaði fyrir fjórum til fimm sinnum hærri verð en fengist fyrir það á heimsmarkaðsverðum. Það hefur verið reynt og sannast. Það þarf bara að halda því starfi áfram en enginn hefur sýnt því áhuga. Ríkið greiddi allan kostnað afurðarstöðvar voru ekki allar með nema Hvammstangi. En nú hafa sauðfjárbændur umtalsverða fjármuni til markaðssetningar sem nánast að öllu leiti er varið verslana sem aldrei auglýsa sérstöðu afurða keppast bara um að auglýsa lægra og lægra verð án tillits til gæða. Það þurfti Costco á markaðinn til að kjötskurði var breytt, þrátt fyrir að ég hafi tekið á móti kaupmönnum og framleiðendum og kynnt fyrir þeim skurðinn fyrir 15 árum.
Takið nú saman höndum bændur og kynnið stöðu ykkar og náið nýjum fjárfestingasamning við þjóðina og njótið stuðnings hennar til öflugrar sóknar Íslandi til heilla.”
Það er ljóst að Baldvin hefur meiri trú á íslenskum bændum og framleiðslu þeirra en þeir sjálfir og ráðherra málaflokksins.