Sjötti fjallaskálaþátturinn á sjónvarpsstöðinni Hringbraut er á dagskrá í kvöld en þá sækir Sigmundur Ernir Þorsteinsskála í Herðubreiðarlindum heim og skoðar náttúrugersemarnar allt í kring.
Þáttunum hefur verið einstaklega vel tekið, enda er paradís íslenskra firninda í forgrunni í bland við forvitnilegar frásagnir staðkunnugra; fyrst var farið í Landmannalaugar, þá í Þórsmörk, Lónsöræfin voru í forgrunni þriðja þáttar, en þaðan lá leiðin í Kverkfjöll og fjallaskálinn Dreki í Dyngjufjöllum var í aðalhlutverki síðasta þáttar fyrir viku.
Áhorfendur fá að kynnast undrum Ódáðahrauns og lindanna sem seytla undan því við austanverða Herðubreið í kvöld, en þjóðarfjallið setur óneitanlega sterkan svip á þáttinn - og ekki er ónýtt að fá að klifra það upp á topp með aðstoð drónavélar sem sýnir strýtuna á ógleymanlegan hátt, en fjallalæknirinn Ólafur Már Björnsson á heiðurinn af þeim myndum. Önnur kvikmyndataka er í höndum Bjarna Svans Friðsteinssonar, svo sem af Gljúfrasmiðnum ógurlega sem æðir um gljúfrin austan lindanna, úfinn og ógurlegur að sjá. Klippingu þáttanna annast svo Logi Sigursveinsson.
Og það er útilegumannaþefur af þætti kvöldsins, enda er þar eitt heillegasta skýli Fjalla-Eyvindar skoðað með aðstoð skálavarðar á staðnum.
Þátturinn, sem unninn er í samstarfi við Ferðafélag Íslands og Fjallakofann hefst klukkan 20:00. Alla hina þættina má sjá á hringbraut.is undir flipanum sjónvarp / Fjallaskálar Íslands.