Fjallaskálarnir: dýrðleiki borgarfjarðar eystri og víknaslóðanna

Það skortir ekki litríkið í Fjallaskálaþætti kvöldsins en þá heimsækja þeir Björn Sigurðsson myndatökumaður og Sigmundur Ernir sjónvarpsmaður eina helstu náttútuperlu Íslands, Borgarfjörð eystri og Víknaslóðirnar.

Þessar slóðir í kringum Dyrfjöllin dýrðlegu geyma annað stærsta líparítsvæði landsins, á eftir Landmannalaugum og Torfajökulssvæðinu - og þáttur kvöldsins ber þess merki að þar hefur súra bergið fengið að leika lausum hala fyrir endur löngu. Sköpulag fjallanna eru enda með öllum hætti, svo sem Hvítserkur ber með sér, Tindfell og auðvitað Dyrfjöll sem koma mjög við sögu i þættinum.

Viðmælendur í Fjallaskálaþætti kvöldsins eru Þórhallur Þorsteinsson, einn helsti forvígismaður Ferðafélags Fljótsdalshéraðs, Hafþór Snjólfur Helgason sem stikað hefur allt göngunetið á Víknaslóðum og Skúli Júlíusson, einn staðkunnasti leiðsögumaður Austurlands sem gengur með Birni og Sigmundi Erni inn í Stórurðina sem er eitthvert stórrfenglegasta náttúrufyrirbrigði Íslands.

Það verður myndaveisla í þætti kvöldsins, sem er sá þriðji í annarri þáttaröðinni af Fjallaskálum Íslands, en fyrir viku var farið í Hornbjargsvita og í vikunni þar á undan í Norðurfjörð á Ströndum, en svo heldur hátíð náttúrunnar áfram í Hvítárnesi, Laugafelli og Hrafntinnuskeri fram til loka nóvember. Í fyrstu þáttaröðinni sem frumsýnd var á síðasta ári var farið í Landmannalaugar, Þórsmörk, Línsöræfi, Kverkfjöll, Dyngjufjöll og Herðabreiðarlindir.

Þættirnir eru allir aðgengilegir á hringbraut.is, en þeir eru sem fyrr unnir í samvinnu við Ferðafélag Íslands og Fjallakofann.