Fjallaskálarnir: dreki heimsóttur

Fimmti þátturinn af Fjallaskálum Íslands verður frumsýndur á Hringbraut í kvöld, en þar ekur þáttastjórnandinn Sigmundur Ernir yfir Vikurhraunið og sækir Dreka heim í mynni samnefnds gils í Dyngjufjöllum.

Þættirnir hafa fengið mikið lof, enda náttúrugersemarnar í aðalhlutverki í þeim - og áhorfendur verða ekki sviknir af Öskjusvæðinu sem er í aðalhlutverki í þætti kvöldsins, en þar er ekki einasta gengið inn í ægifagurt Drekagilið með sínum nafnlausa fossi og komið við í Nautagili sem fékk nafn sitt af tunglförunum á sínum tíma heldur er einnig haldið inn í Öskjuna sjálfa og staldrað við í Víti. Þá er að auki ekið suður fyrir Vaðöldu, að Sandá sem kemur upp úr svörtum sandinum í sindrandi tíbránni á staðnum, seytlandi hrein að sjá og endar vegferð sína litlu neðar í fossinum Skínandi sem snýr brosi sínu að úfnu Holuhrauninu, þeim mikilþykka hraunkambi sem jafnar eyjuna Manhattan að stærð, slík er fyrirferðin á þessari nýjustu viðbót Íslands.

Drekaþáttur Fjallaskála Íslands hefst klukkan 20:00 í kvöld. Þegar hafa skálarnir í Landmannalaugum, Langadal, Lónsöræfum og Kverkfjöllum verið sóttir heim - og eru þeir aðgengilegir á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp - og í næstu viku liggur leiðin í Þorsteinsskála í Herðubreiðarlindum. Önnur sex þátta röð af fjallaskálum landsmanna verður svo tekin upp næsta sumar og enn önnur sumarið þar á eftir svo áhorfendur Hringbrautar eiga von á góðu næstu misserin. 

Þættirnir eru unnir í samsatrfi við Ferðafélag Íslands og Fjallakofann.