Þáttaröðin Fjallaskálar Íslands, ein metnaðarfyllsta dagskrárgerð sjónvarpsstöðvarinnar Hringbautar til þessa, heldur áfram í kvöld þegar fjórði þátturinn birtist landsmönnum, en þar eru Kverkfjöll sótt heim, einn tilkomumesti fjallabálkur landsins í norðurjaðri Vatnajökuls.
Í jaðri jökulsins stendur Sigurðarskáli, einn stærsti og fegursti fjallaskáli landsins, elskaður af göngufólki sem sogast að þessum einum merkilegustu jarðsöguslóðum íslenska hálendisins þar sem eldur og ís eigast við á hverjum degi. Kverkfjöll eru austasti partur megineldstöðvakerfis Íslands, eins og Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur bendir áhorfendum á í þættinum, en hann hefur skrifað manna mest um þetta svæði sem á sér engan líka á öræfum landsins.
Það er óhætt að segja að áhorfenda bíði tilkomumikil sjón í kvöld klukkan 20:00 þegar þátturinn fer í loftið, en hann er unninn í samstarfi við Ferðafélag Íslands og Fjallakofann - og er hluti af átján þátta röð um skálanna inn til hálendisins sem verða i sýningu á Hringbraut í vetur, svo og næsta og þarnæsta vetur. Þegar hafa Landmannalaugar, Skagfjörðsskáli í Þórsmörk og Múlaskáli í Nesi í Lónsöræfum verið heimsóttir, en þættirnir eru aðgengilegir á hringbraut.is undir flipanum sjónvarp, merktir Fjallaskálar Íslands.
Umsjón og stjórn upptöku þáttanna er í höndum Sigmundar Ernis Rúnarssonar, myndataka er unnin af Bjarna Svani Friðsteinssyni og klippingu annast Logi Sigursveinsson.