Fjallamenn íslands heimsóttir

Síðasti þáttur Atvinnulífsins á þessu vori verður á dagskrá Hringbrautar kl. 22.00 í kvöld.

Að þessu sinni heimsækir Atvinnulífið hjónin Ólöfu Einarsdóttur og Herbert Hauksson en

þau eiga og reka fyrirtækið Fjallamenn eða Mountaineers of Iceland en Herbert stofnaði

fyrirtækið árið 1996.  Fjallamenn er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á Íslandi en aðal

starfsemi þess er útleiga á snjósleðum á Langjökli en þar er rekin mikil útgerð þessu samfara.

Fjöldi hópa, hvaðanæva að úr heiminum kemur á Langjökul á vegum Mountaineers of Iceland

í hverri viku og hefur aukist gífurlega með auknum ferðamannastraumi til landsins.   Þar nægir

ekki að bjóða fólki uppá hefbundnar samlokur heldur þurfa menn eins og Jóhannes í Múlakaffi

að senda vistir upp eftir að bestu gerð til að auka á ánægju ferðamanna. 

Að vanda er Sigurður K. Kolbeinsson umsjónarmaður en Friðþjófur Helgason annaðist kvikmyndatökur

og samsetningu. 

Þættirnir um Atvinnulífið hefja svo göngu sína að nýju í byrjun september n.k.