Fjallaklifur og náttúrulækningar

Heilsu- og útvistarþátturinn Lífsstíll er á sínum stað á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl. 21.00, en aðalgestur þáttarins að þessu sinni er Leifur Örn Svavarsson fjallagarpur sem komist hefur á topp hæstu fjalla allra álfa jarðarinnar auk þess að hafa stigið niður fæti á báða pólana. Hann mun bæði ræða um aukið umfang Íslenskra fjallaleiðsögumanna sem hann starfað hjá og hvernig hann sjálfur ber sig að við fjallgöngur við erfiðistu skilyrði. Þá mun Gunnlaugur K. Jónsson forseti Náttúrulækningafélags Íslands segja frá hefðbundnum náttúrulækningum í tilefni af þeirri orrahríð sem verið hefur um óhefðbundnar lækningar á síðustu dögum og vikum. Sérfræðingar þáttarins verða loks á sínum stað, hver í sínum flokki.


Eldri þætti er hægt að horfa á hér: