Fiskverkun flutt úr landi

Oddvitar Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) segja við fjölmiðla að skoða ætti að flytja fiskverkun til útlanda. Þetta eru nokkur tíðindi ef þetta er þá rétt haft eftir oddvitum SFS. Líkast til bregðast útvegsmenn og sjómenn við þessum ummælum seinna í dag. Gengi krónunnar er vissulega hátt þó það hafi lækkað eftir afnám fjármagnshaftanna. Heimildir Hringbrautar herma að ekki megi taka ummæli oddvita SFS bókstaflega.