Fiskeldisfyrirtæki sameinast sfs

Á auka aðalfundi Landssambands fiskeldisstöðva (LF) þann 14. desember síðastliðinn ákváðu aðildarfyrirtæki sambandsins í sameiningu að óska eftir aðild að Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), og leggja jafnframt niður daglega starfsemi LF. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá SFS.

Stjórn LF segir fiskeldi hérlendis hafa aukist á undanförnum árum og verkefni sambandsins orðið fleiri og fjölþættari. Því væri það mat stjórnar LF að þeim verkefnum verði betur sinnt innan vébanda SFS.

Einar K. Guðfinnsson, formaður stjórnar LF og fyrrverandi forseti Alþingis, verður hluti af teymi SFS og mun sinna verkefnum er snúa að fiskeldismálum. „Það hefur verið mikil uppbygging í fiskeldi á undanförnum árum og verkefnin sem þarf að leysa úr eru orðin umfangsmeiri og kannski að sumu leyti flóknari en áður. Ég tel þetta því rökrétt skref í þróun sambandsins og fiskeldis á Íslandi, að verða hluti af samtökum sem byggjast á gömlum grunni. Laxeldi hefur alla burði til þess að verða undirstöðuatvinnugrein á Íslandi á sama hátt og sjávarútvegurinn hefur verið um langt skeið og  verða þar með enn ein stoðin undir efnahagslegri hagsæld Íslendinga. Að því munum við vinna,“ segir Einar.

Jens Garðar Helgason, formaður stjórnar SFS, segist fagna komu fiskeldis í samtökin. Nokkur fyrirtæki í fiskeldi hafi um alllangt skeið verið félagsmenn í SFS og styrkur sé fólgin í því að fjölga þeim.