Heildarafli íslenskra fiskiskipa var tæplega 73 þúsund tonn í júnímánuði. Það er 16.400 tonnum meira en í júní árið 2014. Landaður fiskafli íslenskra skipa jókst því á milli ára á föstu verði.
Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum frá Hagstofu Íslands. Þar er aflinn í júní borinn saman við sama mánuð í fyrra.
Þorskafli stóð í stað, en löndun á öðrum botnfiski jókst um tæplega 2.900 tonn á milli ára. Þá jókst flatfiskafli um 842 tonn á milli ára og uppsjávarafli um tæp 13.000 tonn. Á síðustu 12 mánuðum hefur heildaraflamagn aukist um tæp 236 þúsund tonn, en það er tæplega 22% meira magn en á sama tímabili árið áður. Mest aukning varð í löndun á uppsjávarafla, sem var rúmum 266 þúsund tonnum meira á tímabilinu júlí 2014 - júní 2015 en á fyrra 12 mánaða tímabili.