Heildarafli íslenskra fiskiskipa var tæplega 95 þúsund tonn í júlí 2015, sem er rúmlega 3.500 tonnum meira en í júlí 2014 að því er fram kemur í nýjustu tölum Hagstofu Íslands.
Heildarlöndun á botnfiski jókst um 8,9% samanborið við júlí 2014. Flatfiskafli jókst um rúm 1.500 tonn, og er það mest vegna aukins grálúðuafla, en hann meira en tvöfaldaðist frá júlí 2014. Uppsjávarafli var svipaður og í sama mánuði fyrir ári. Humarafli var 18% minni en í júlí 2014 en rækjuafli jókst um 22%
Metið á föstu verði minnkaði aflinn í júlí 2015 um 4,2% miðað við júlí 2014.
Á síðustu 12 mánuðum hefur heildaraflamagn aukist um tæp 251 þúsund tonn, sem er 23,3% meira magn en á sama tímabili árið áður. Mest aukning varð í löndun á uppsjávarafla, sem var rúmum 274 þúsund tonnum meiri á tímabilinu ágúst 2014 - júlí 2015 en á fyrra 12 mánaða tímabili.