Finnur ingólfs á leið til mars?

„Það eina sem ég tel áhugavert í þessu sambandi er hvort vatnið er heitt og mér finnst að fjölmiðlar, ekki síður heimspressan, ættu að gefa því gaum hvort og hvernig rennslið á því verði mælt. Það kæmi mér nefnilega ekki á óvart að Finnur Ingólfsson yrði kallaður til – og væri nú ekki gráupplagt að Orkuveitan seldi honum mælana sem hún keypti á dögunum?“

Svo spyr húmoristinn Guðmundur S. Brynjólfsson, pistlahöfundur á Hringbraut í nýjum pistli þar sem hann gerir uppgötvun Nasa um fljótandi vatn á plánetunni Mars að umræðuefni. Hann segir alls ekki út í loftið að nefna Finn í þessu sambandi; „það er hefð fyrir því að þeir reddi honum verkefnum, grænu karlarnir.“

Guðmundur áttar sig aftur á móti illa á þeirri athygli sem fréttin um fljótandi vatn á Mars hefur vakið meðal Íslendinga.

„Hefur það farið framhjá fólki að hann hefur legið í linnulausum rigningum í allt haust? Hér hefur ekki bara verið úrkoma í grennd, heldur í mikilli nánd og yfir og allt um kring og auðvitað líka á Mars!“