Finnur dv spilltan framsóknarmann?

Reynir Traustason, fyrrum ritstjóri DV, sendir Eggerti Skúlasyni, arftaka sínum á ritstjórastóli DV undir eigendavaldi Björns Inga Hrafnssonar, kaldar kveðjur. Ástæðan er efnistök, römmum frétta og ritstjórnarstefna blaðsins sem áður var þekkt fyrir að veita æðstu valdhöfum Íslands aððhald, undir stjórn Reynis Traustasonar.

\"DV er alveg með þetta í dag. Fyrirsögn í blaðinu segir að Pírati sé í eigendahópi Stundarinnar (2 prósent). Þá er blaðið með þau tíðindi í burðargrein að þar sé að finna sjúkraliða líka í gegnum óbeint eignarhald. Mikið er nú gott að þeir fundu ekki Framsóknarmann,\" skrifar Reynir Traustason á eigin facebooksíðu.

Harðri rimmu ólokið

Hörð rimma skapaðist milli Kjarnans og Stundarinnar annars vegar og hins vegar DV eftir að Hringbraut flutti frétt þar sem vitnað var í það óréttlæti að mati Eggerts Skúlasonar, ritstjóra DV, að DV hefði ekki verið í hópi fjölmiðla sem fengu aðgang að Panamaskjölunum frá Reykjavík Medía. Bæði ritstjóri Kjarnans og ritstjóri Stundarinnar, fjölmiðilsins sem Reynir Traustason skrifar fyrir núna, hjóluðu í Eggert eftir að hann sakaði þá um að starfa á miðlum sem væru \"hallir undir ákveðin öfl\". Ritstjórarnir skýrðu hvers vegna það væri ekki trúverðugt að DV myndi vinna fréttir upp úr Panamaskjölunum. Sú staðreynd ein að Eggert Skúlason ritstjóri væri sjálfur í Panamaskjölunum gerði hann vanhæfan til að fjalla um Panamaskjölin. 

Ritstjóri Stundarinnar, Jón Trausti, sonur Reynis Traustasonar, sagði í frétt Hringbrautar þegar falast var eftir viðbrögðum ritstjóranna tveggja:

\"Það er ekki bara ósköp eðlilegt, heldur líka nauðsynlegt, að gæta þess að þeir sem fjalli um mál séu ekki vanhæfir til þess vegna eigin hagsmuna og stöðu. Það er ein helsta grundvallarreglan í blaðamennsku. Ég þekki ekki forsendur Reykjavík Media að öllu leyti, en býst við því að þær séu eftirfarandi: Í fyrsta lagi, þeir eru of fámennir til að geta unnið úr öllum gögnunum og þurfa því annað hvort að sleppa mörgu eða hleypa öðrum að. Í öðru lagi, þeir velja þá til samstarfs sem eru ekki vanhæfir til að fjalla um málin vegna beinnar eða óbeinnar þátttöku sinnar í málunum.\"

Jón Trausti sagði þá einnig:  \"Eggert virðist hins vegar ekki sjá það sem vandamál að vera vanhæfur. Hann skrifaði til dæmis bók um að rannsóknir sérstaks saksóknara væru ofsóknir, á sama tíma og hann var sjálfur til rannsóknar, án þess að geta um það. Bókin var gefin út af bókaútgáfu sem er stýrt af kjarnameðlimum í Sjálfstæðisflokknum, meðal annars Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, og svo fyrrverandi Kaupþingsmönnum.\"

Augljós hagsmunaárekstur

Ennfremur sagði Jón Trausti: \"Auk þess var sérstætt, út frá faglegu og blaðamennskulegu sjónarmiði, að lesa viðtal við hann í DV, blaðinu sem hann ritstýrir, um hvernig hann hefði þegar greint frá því að hann ætti félag í skattaskjóli, þegar hann í reynd hafði ekki greint frá því heldur einungis sagst eiga félag erlendis. Ef ég hefði aðgang að öllum skjölunum í Panama-lekanum myndi ég ekki veita þeim aðgang að þeim sem væru of tengdir gögnunum og vísbendingar væru um að hefðu annarlega hagsmuni. Ég myndi ekki veita Eggerti aðgang að þeim vegna augljóss, formlegs hagsmunaáreksturs, vanhæfi og hættu á trúnaðarbresti.\"

Hverjir eru hallir undir öfl?

Þrálátur orðrómur hefur gengið um að rekstrafé Björns Inga til að halda fjölmiðlaveldi sínu á lofti tengist með einhverjum hætti fé, tengdu fjársterkum aðilum innan Framsóknarflokksins. Áhrifamiklir valdamenn innan Framsóknarflokksins eru áberandi í Panamaskjölunum og hafa tveir æðstu stjórnendur Framsóknarflokksins hrökklast frá völdum vegna fjármálahneyksla. Annar er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Hinn er Hrólfur Ölvisson, sem hefur sagt af sér sem framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins vegna Panamaskjalanna.

-BÞ