Finnur árnason mætir á þjóðbraut

Finnur Árnason, forstjóri Haga og einn áhrifamesti maður í íslensku viðskiptalífi sest við hringborðið hjá Páli Magnússyni í þjóðmálaþættinum Þjóðbraut á Hringbraut í kvöld.

Finnur ræður þar starfsumhverfi íslenskra fyrirtækja, samkeppnismálin, verðlagningu á matvörum, tollamálin og væntanlega samkeppni við Costgo sem boðar komu sína á íslenskan matvörumarkað.

Í þáttum sínum í haust og vetur mun Páll Magnússon í auknum mæli fá áhrifamestu stjórnendur í íslensku viðskiptalífi til skrafs og ráðagerða um það sem betur má fara í íslensku efnahagsumhverfi, milli þess sem hann tekur helstu stjórnmálamenn landsins á beinið.

Þjóðbraut Páls er frumsýnd klukkan 21:00 í kvöld og endursýnd strax klukkan 23:00.