„finnst skítt af fólki að stela frá samtökum sem snúast um að bjarga mannslífum“

Í gærkvöldi voru fjórir aðilar handteknir grunaðir um þjófnað á flugeldum sem stolið var frá Hjálparsveit Skáta í Kópavogi og verða þeir yfirheyrðir í dag. Við húsleit fundust flugeldarnir sem leitað var að og hefur sveitin því fengið sitt til baka. Fleiri munir fundust við leitina sem taldir eru tengjast öðrum innbrotum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. RÚV  greindi frá því í gær að söluandvirði flugeldanna , sem stolið var úr læstum gámi við Skátafélagið Skjöldunga við Sólheima í Reykjavík, nemi um einni milljón króna.

Daði Auðunsson, sem annast flugeldasölu skátafélagsins sagði við RÚV:

„Þetta voru bæði skotkökur og fjölskyldupakkar og eitthvað fleira. Við erum ekki komin með endanlega tölu á hvað var tekið í heildina, en ég myndi áætla að þetta væri einhvers staðar í söluvirði kannski um milljón.“ Þá sagði hann einnig:

„Auðvitað er manni brugðið þegar svona kemur upp, en kannski er maður helst til sár af því að þetta er náttúrulega fjáröflun. Mér finnst það heldur skítt af fólki að stela frá samtökum sem snúast bara um það að bjarga mannslífum.“