Finnar eru nú hamingjusamastir allra þjóða samkvæmt árlegum lista yfir hamingjusömustu þjóðir heims (World Happiness Report). Ísland er í fjórða sæti á listanum, Danir í þriðja og Norðmenn eru svo næst hamingjusamastir.
Ísland hefur endurheimt stöðu sína meðal hamingjusömustu þjóða heims og verið í annað hvort 2. eða 3. sæti á listanum síðan 2014, en í nokkur ár eftir hrun náðum við ekki inn á topp 10 á listanum. Það þarf að fara aftur til 2006 til að sjá Ísland í efsta sætinu en neðst fórum við í 23. sæti árið 2010.
Það vekur athygli á listanum í ár að Bandaríkin halda áfram að lækka, eru nú í 18. sæti en voru í 13 sæti fyrir tveimur árum.
Annað sem vekur athygli er að hamingjusömustu innflytjendurna er að finna meðal hamingjusömustu þjóðanna. Kannað var hvernig innflytjendum líður í viðkomandi löndum og Finnland er þar líka í fyrsta sæti og Ísland í því fjórða.
Af þeim þjóðum sem mest hafa hækkað á listanum erum Ísland í 20 sæti. Á þessum sama hástökkvaralista hefur Togo hækkað mest, en er samt meðal óhamingjustu þjóða í flokki með fátækustu Afríkuríkjum og stríðshrjáðum þjóðum Miðausturlanda.