Birgitta Jónsdóttir kapteinn Pírata og þingkona segist ekki finna fyrir öðru innan raða Pírata en þeir taki vel í hugmynd sína um að stjórnarandstaðan geri með sér kosningabandalag fyrir næstu alþingiskosningar sem fara að öllu óbreyttu fram eftir tvö ár. Hún segir að þótt hugmyndin kunni að þykja róttækt þá sé hún til þess falinn að ná árangri; mörg helstu umbótamálin í íslensku samfélagi séu þessum flokkum sameiginleg, svo sem breyting á stjórnarskránni og mörg þau mál af sama meiði sem styrki lýðræðið í landinu og þar með aðkomu þjóðarinnar að veigamiklum úrlausnarefnum. Birgitta segist einmitt finna fyrir því að mikill fjöldi landsmanna vilji fara þessa leið með bindandi samkomulagi stjórnarandstöðunnar.
Formenn hinna stjórnarandstöðuflokkanna hafa tekið ágætlega í hugmyndir Birgittu án þess þó að taka frekar af skarið hvað þær varðar.
Fylgi Pírata hefur aukist að mun frá áramótum ef marka má nýjustu skoðanakannanir sem benda til þess að flokkurinn sé orðinn álíka stór og Sjálfstæðisflokkurinn, með um fjórðungs stuðning þjóðarinnar.