Fínir gestir á laugardagsmorgni

„Ég fæ til mín marga gesti og góða. Fyrstur kemur Bjartmar Guðlaugsson og þá þau Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur og Þórlindur Kjartansson, lögræðingur og hagfræðingur og að endingu þingmennirnir Jón Gunnarsson og Lilja Rafney Magnúsdóttir,“ sagði Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Þjóðbrautar.

Þátturinn er á dagskrá útvarps Hringbrautar klukkan 10:00 í fyrramálið og stendur til hádegis, það er þar til klukkan 12:00.

„Ég er viss um að ég verð með efni til að hafa skemmtilegan og uppbyggilegan þátt,“ sagði Sigurjón.

Þegar þætti Sigurjóns lýkur tekur Geir Ólafsson við, en Geir mun leika vandaða tónlist og segja frá lífshlaupi Franks Sinatra.