Samkvæmt fyrstu skoðanakönnun hringbrautar.is vill nærfellt fimmtungur landsmanna að Ólafur Ragnar Grímsson bjóði sig aftur fram til embættis forseta Íslands. Rétt rúm 80 prósent þátttakenda í könnuninni eru því andsnúin. Um netkönnun er að ræða sem ekki styðst við vísindalegar forsendur, en gefur engu að síður til kynna vilja þess fjölda fólks sem sótt hefur inn á fréttavef Hringbrautar á síðustu dögum.
Ólafur Ragnar Grímsson var fyrst kjörinn forseti Íslands árið 1996, eða fyrir bráðum tveimur áratugum – og hefur enginn fyrri forseta Íslands setið jafn lengi á forsetastóli. Hann hugðist draga sig í hlé fyrir forsetakosningarnar 2012 en lét til leiðast sakir undirskrifta nokkurra tuga þúsunda kosningabærra Íslendinga að bjóða sig fram í fimmta sinn, oftar en nokkur forseti lýðveldisins hefur gert. Ólafur Ragnar hefur enn ekkert gefið uppi um áform sín hvað frekari setu á stóli forseta varðar, en hann verður 72 ára á þessu ári.