Fimmtán erlendir ferðamenn sem ferðuðust með Herjólfi í gær greindust allir smitaðir af COVID-19. Ferðamennirnir fengu jákvæðar niðurstöður úr skimun þegar komið var í land í Heimaey. Minnst 83 greindust jákvæðir innanlands í gær.
„Það voru farþegar í gær sem voru að ferðast frá Landeyjahöfn til Vestmannaeyja sem fengu símtal eftir að þeir komu til eyja um að þeir væru með jákvæðar niðurstöður,“ segir Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs.
„Við fáum í raun og veru bara upplýsingar frá lögreglunni í Vestmannaeyjum sem annast þessa rakningu og fengum leiðbeiningar frá henni. Þessi hópur fór síðan yfir í Landeyjahöfn aftur og þau sátu í rútu inni á bíladekki.“
Hörður segir að gripið hafi verið til ákveðinna vinnuregla sem séu til staðar fyrir svona tilvik.
„Við fengum síðan upplýsingar um hvernig við ættum að haga okkur og hvað við þyrftum að gera frá rakningarteyminu.“
Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi almannavarna, segir að fólkið hafi greinst neikvætt við komuna til Íslands.
„Það eru margir sem koma inn til landsins með neikvætt PCR en svo greinist fólk eftir að það kemur í einhverjum tilvikum, það er bara svolítið eins og Delta afbrigðið virkar.“
Hjördís segir að hópurinn sé ekki lengur í Vestmannaeyjum og að rakningarteymi almannavarna sé að vinna að því að koma þeim í sóttkví í sóttvarnarhúsi.
Hún segir það viðbúið að fleiri sem tengjast hópnum eða áttu samneyti við fólkið muni greinast jákvæðir.
„Við búumst frekar við því heldur en ekki að það bætist í þennan hóp, þeir sem tengjast honum, miðað við hvað þetta er smitandi.“