Fimm verktakar í gæsluvarðhald

Fimm manns sitja í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á stórfelldum skattalaga og bókhaldsbrotum í starfsemi verktakafyrirtækja í byggingariðnaði. Níu voru handteknir í mikilli rassíu yfirvalda á þriðjudagsmorgun eftir því sem fram kemur í frétt Kastljóss á ruv.is.  40 manns frá fjórum embættum tóku þátt í aðgerðunum. Húsleitir voru gerðar á ellefu stöðum á suðvesturhorninu og lagt hald á bókhaldsgögn og reiðufé eftir því sem fram kemur hjá Rúv.
 

\"Samkvæmt heimildum Kastljóss beindust aðgerðirnar að fleiri en einu verktakafyrirtæki vegna gruns um stórfelld skattalagabrot, brot á bókhaldslögum og gruns um peningaþvætti. Aðgerðirnar hófust að morgni þriðjudags. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson, Héraðssaksóknari í samtali við Kastljós. Lögreglan kom einnig upp um kannabisræktun,\" segir í frétt Rúv.

Málið snýst um verulegar fjárhæðir og er fáheyrt eða einsdæmi að fjöldi verktaka sé færður í gæsluvarðhald vegna gruns um brot af fyrrnefndu tagi.