Eitt COVID-19 smit greindist innanlands á föstudaginn og fjögur á laugardag, öll utan sóttkvíar. Þetta kemur fram í nýuppfærðum tölum á upplýsingavef almannavarna covid.is. Smitið sem greint var á föstudaginn greindist við einkennasýnatöku en þau sem greind voru á laugardag í sóttkvíar- eða handahófsskimun.
Um er að ræða fyrstu smitin innanlands frá því um miðjan mánuðinn.
Allar sóttvarnarreglur voru afnumdar af ríkisstjórninni á föstudag.