Björn Ingi býðst til að borga skuld með steikum
Björn Ingi Hrafnsson, fyrrverandi eigandi Pressunnar, bauðst til að greiða fyrir hlutafé í fyrirtækinu með steikum að andvirði sex milljóna króna frá Argentínu steikhúsi. Þetta fullyrti Árni Harðarson, einn af eigendum Dalsins sem hugðust ætla að kaupa Pressuna á síðasta ári. Pressan var úrskurðuð gjaldþrota í desember á síðasta ári. Kjarninn.is greindi frá.
Í desember á þessu ári greindi Mbl.is svo frá gjaldþroti Argentínu steikhúss.
„Stórskrýtinn“ Pawel vakti athygli fjölmenns Facebook hóps
Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar, gerði sér ferðir á reiðhjóli um Reykjavíkurborg í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Þar vakti hann athygli meðlima Facebook hópsins Beauty tips, þar sem talað var um „stórskrýtinn gæja“ sem gekk um Grafarvog og tók upp Snapchat myndbönd. Beauty tips hópurinn er einungis fyrir konur og telur um 17.000 manns. Vísir.is greindi frá.
Pawel sagði í samtali við Vísi að Reykvískar mæður mættu vera óhræddar við sig og að ætlunin væri ekki að hrella neinn, þetta hefði hann einungis gert í þeim tilgangi að átta sig betur á legu leikskóla borgarinnar og hvaða stefnu þeir hafa. Þessum athugunum hafi hann svo gert skil í snap sögum.
Hátíðarhöld Alþingis á Þingvöllum mættu gagnrýni og áhugaleysi
Aðeins 300 manns mættu á hátíðarhöld Alþingis á Þingvöllum í tilefni fullveldisafmælis Íslands í sumar og áhorf á beina útsendingu á RÚV mældist aðeins 10,5 prósent.
Fyrir utan almennt áhugaleysi á hátíðarhöldunum var einnig mikil reiði meðal þingmanna og almennings, bæði vegna boðs hinnar umdeildu Piu Kjærsgaard, forseta danska þingsins sem hefur alið á innflytjendaandúð, til að flytja ávarp á viðburðinum og vegna gífurlegs kostnaðar við hátíðarhöldin. Kostnaðurinn fór rúmar 40 milljónir fram úr upphaflegri kostnaðaráætlun og af 87 milljóna endanlegum heildarkostnaði fóru 22 milljónir í lýsingu á viðburðinum.
Vísir.is, RÚV.is og Kaffið.is voru meðal þeirra miðla sem greindu frá.
BDSM partý auglýst á síðu hjálparsveitar
Magnús Örn Hákonarson björgunarsveitarmaður og formaður BDSM á Íslandi varð fyrir því óláni að auglýsa BDSM partý á Facebook síðu Hjálparsveitar skáta í Kópavogi. Auglýsingin átti vitanlega ekki að rata þangað, heldur á Facebook síðu BDSM á Íslandi. DV.is og Vísir.is greindu frá.
Í samtali við Vísi segist Magnús einfaldlega hafa hitt á ranga síðu og að flest viðbrögð sem hann hafi orðið var við vegna mistakanna hafi verið góðlátlegt grín. Vissulega hafi þó einhverjir fáir kallað eftir brottrekstri hans úr hjálparsveitinni en það hafi ekki fengið á hann.
Dorrit lætur klóna hundinn
Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, hefur ákveðið að láta klóna Sám, hund hennar og Ólafs Ragnars Grímssonar fyrrverandi forseta. Í viðtali á Rás 2 greindi Ólafur Ragnar frá því að sýni hefðu verið tekin úr Sámi og send til fyrirtækis í Texas í Bandaríkjunum sem hefði ræktað úr þeim frumur. Úr þeim væri hægt að klóna Sám hvenær sem er.
Í viðtalinu sagði Ólafur Ragnar enn fremur: „Sámur er orðinn nokkuð gamall, hann er orðinn ellefu ára. Þannig að Dorrit ákvað að láta klóna hann. Það eru sem sagt tvö fyrirtæki í heimi sem klóna hunda. Annað er í Texas og hitt er í Suður Kóreu. Við fórum til dýralæknis. Það var tekið sýni af húðinni og sent út til Texas. Nú er búið að rækta úr því frumur og hvenær sem við viljum og erum tilbúin að fá nýja Sám getum við það. Dorrit ákvað að gera það ekki fyrr en Sámur væri allur. Ég veit ekki hvort Sámur yrði þá fyrsti hundurinn á Íslandi sem yrði klónaður.“
RÚV.is greindi frá.