Fimm piltar sýknaðir af hópnauðgun

Héraðsdómur Reyljavíkur sýknaði í morgun fimm pilta sem voru ákærðir um hópnauðgun í Breiðholti í maí í fyrra. Einn þeirra var dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi og 500 þúsund króna sekt fyrir að mynda atvikið. 
 

Piltarnir eru á aldrinum 18 til 20 ára. Þeir voru allir ákærðir fyrir að hafa haft margvísleg kynferðismök við stúlku, sem þá var sextán ára, gegn hennar vilja. 

Piltarnir neituðu allir sök. Samkvæmt niðurstöðu héraðsdóms þykja gögn málsins og vitnisburðir ekki geta staðfest sekt þeirra. Framburður piltanna þykir trúverðugur og ekkert hafi komið fram í málinu sem gefi til kynna að þeir hefðu ástæðu til að halda að stúlkan væri ekki samþykk því sem fram fór.

Í frétt RÚV um dóminn í morgun segir að samkvæmt ákærunni hafi piltarnir haldið stúlkunni nauðugri í svefnherbergi íbúðar á ókunnugum stað og beitt hana ofbeldi. Ríkissaksóknari hafi haldið því fram fyrir dómi að piltarnir hefðu notfært sér yfirburðastöðu og aðstöðumun gagnvart stúlkunni sem hefði mátt sín lítils gegn þeim, ein í lokuðu og myrkvuðu herbergi, lömuð af hræðslu og fjarri öðrum.

Einn piltanna var að auki ákærður fyrir að færa stúlkuna í annað herbergi og nauðga henni þar. Einn fimmmenninganna er ákærður fyrir að taka upp myndband umrætt kvöld og sýna samnemendum stúlkunnar myndefnið í skólanum mánudaginn á eftir. Móðir stúlkunnar fór, fyrir hönd dóttur sinnar, fram á rúmlegra tíu milljóna króna í skaða- og miskabætur.

Stúlkan kærði nauðgun í byrjun maí í fyrra. Lögreglan hóf rannsókn og handtók piltana fimm sem allir neituðu sök. Þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald meðan á rannsókn málsins stóð og sleppt viku síðar. Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu lauk rannsókninni í júní í fyrra og sendi málið til ríkissaksóknara. Ákæra var gefin út 28. maí síðastliðinn, tæpu ári eftir að rannsókn lögreglu lauk.