Haldið ykkur fast. Breytingar hafa orðið á facebook þar sem kynntir eru til sögunnar hvorki fleiri né færri en fimm nýir \"lækfídusar\".
Þumall upp, gamla táknið sem merkir að fólki líki við eða \"læki\" verður ekki lengur ráðandi. Ef notendur langar að lýsa velþóknun á mynd, skrifum eða öðru sem birtist á fréttaveitum notenda býðst senn lækhnappur sem táknar kærleika, annar sem táknar gleði, þriðji sem þýðir: vá!, fjórði sem lýsir leiða og einn enn sem lýsir reiði.
Erlendir vefir hafa á síðustu klukkustundum fjallað ítarlega um byltinguna fram undan eins og t.d. lesa má um hér. Svo virðist sem tæknin sé þegar komin í loftið í sumum löndum og þar á meðal í íslenskum tölvum.
Mark Zuckerberg, maðurinn á bakvið facebook segir að vinnan hafi tekið um eitt ár. Ljóst sé að ekki sé allt efni þeirrar gerðar að fólki geti líkað við það en langi eigi að síður að sýna svörun við því.
Bendli skal haldið yfir hinum hefðbundna læktakka áður en smellt er og er þá hægt að velja blæbrigði.