Fimm minkabændur hætta á einum mánuði

Fimm minkabændur hafa hætt á einum mánuði og eru einungis 14 eftir í greininni. Áður voru minkabændur 240 talsins. 

Verð á minkaskinnum hefur verið lágt undanfarin þrjú ár en árið í ár var verst þar sem söluverðið náði ekki nema um helmingi þess verðs sem kostar að framleiða hvert skinn.

Svo segir í nýjasta Bændablaðinu. Fimm bændur hafa hætt frá því í nóvember og líklegt að fleiri bregði búi á næstu vikum en þrettán eru eftir í greininni, segir í fréttinni sem nálgast má hér í heild sinni. Flestir hafa loðdýrabændur verið 240 eða á árunum 1987 til 1989. Eftir aldamótin varð hrund og flestir eftir það hafa bændurnir verið 45 talsins.

Minnkabændur í öðrum löndum eiga einnig mjög erfitt uppdráttar og segir einn bændanna hérlendis í samtali við blaðið að stjórnvöld sýni ekki nauðsynlegan stuðning.

Tíu ár eru síðan fréttir bárust af gríðarlegri uppsveiflu í greininni. Í frétt  haustið 2008 á bondi.is var greint frá því að loðdýraræktin væri í mikilli uppsveiflu. Í fréttinni stóð meðal annars: 

 „Aðalfundur Sambands íslenskra loðdýrabænda var haldinn í Eyjafirði 4.október sl. Í máli formanns kom fram að loðdýrarækt á Íslandi væri í mikilli uppsveiflu og kemur þar margt til. Framfarir í framleiðslunni bæði hvað stærð og háragæði skinnanna varðar hafa aldrei verið meiri og nú er svo komið að Íslendingar fá þriðja hæsta verð heims fyrir framleiðslu sína. Íslendingar ná einnig næsthæstu frjósemi á búum sínum og er það gleðilegt þar sem hún er einn veigamesti þátturinn í afkomu búanna“.