Fimm milljóna launatap

Gengisbreytingar og lækkandi verð á fiskmörkuðum koma verulega niður á launum sjómanna og afkomu sjávarútvegsfyrirtækja. Gengi krónunnar hefur hækkað mikið síðustu mánuði. Fiskifréttir tóku saman upplýsingar frá Síldarvinnslunni þar sem dæmi er tekið um framleiðslu og framleiðsluverðmæti frystitogarans Barða NK árið 2015 og borið saman við stöðuna í dag á genginu og afurðaverðinu.

Auk hinna óhagstæðu gengisbreytinga hefur afurðaverð farið lækkandi á helstu mörkuðum. Þetta tvennt hefur valdið mörgum sjávarútvegsfyrirtækjum erfiðleikum og rýrt mjög kjör sjómanna. Til þess að útskýra hvað hér er um að ræða er birt á vef Síldarvinnslunnar meðfylgjandi tafla. Taflan sýnir framleiðslu og framleiðsluverðmæti frystitogarans Barða NK á árinu 2015 og til samanburðar framleiðsluverðmæti og afurðaverð á núverandi gengi og miðað við núverandi afurðaverð.  Ein af niðurstöðunum er að auk taps útgerðarinnar

Lækkar hlutur skipverja mikið. Arshlutur háseta hafi verið 18,8 milljónir á árinu 2015 en verði 13,8 milljónir miðað við núverandi gengi og afurðaverð. Árstekjurnar lækka því um 5 milljónir króna.