Fimm milljarðar í hjólastíga í Reykjavík: „Mjög spennandi tímar framundan“

Hjólreiðaáætlun Reykjavíkur 2021-2025 var samþykkt einróma í samgöngu- og skipulagsráði í gær. Markmið áætlunarinnar er að auka hlutdeild hjólreiða í ferðum í borginni en stefnt er að því að að minnsta kosti 10% allra ferða í borginni verði farnar á hjóli árið 2025.

Lagt er til að fjárfestingar í nýjum hjólreiðainnviðum í Reykjavík verði að lágmarki fimm milljarðar króna á tímabilinu. Áætlunin byggir á fjórum yfirmarkmiðum sem öll hafa mælanleg undirmarkmið.

„Hjólreiðar hafa aukist úr 2% allra ferða í 7% á 10 árum. Enda er hjólastígum búið að fjölga mjög mikið. Við ætlum að byggja hjólastíga fyrir milljarð á ári næstu fimm árin. Sérmerkta aðgreinda hjólastíga. Það grunnnet er nefnilega enn ekki klárt,“ segir Pawel Bartosek, formaður ráðsins, á Facebook. „Mjög spennandi tímar framundan. Það er þegar gott að hjóla í RVK en borgin getur orðið hjólaborg á heimsmælikvarða.“

Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem leiddi vinnuna, segir að horft verði til fleira en bara stíga. „Það er ýmislegt nýtt í þessari áætlun, það er til dæmis í fyrsta skipti minnst á fjallahjólreiðar og keppnishjólreiðar,“ segir hún á Facebook. „Ég vildi að áætlunin væri bleik og að hún myndi vera playful svo hún myndi endurspegla hversu skemmtilegt er að hjóla, því það er auðvitað það skemmtilegasta í heimi.“