Fimm milljarðar fylgjast með ól í ríó

Keppendurnir frá Íslandi í Ríó í Brasilíu, átta talsins á meðal þeirra 11.551 íþróttamanna alls sem keppa á sumarólympíuleikunum í Ríó, sem hófust 5.ágúst og standa til 21.ágúst. Áhorfendur eru taldir vera um 5 milljarðar samkvæmt upplýsingum á opnberum vef leikanna. Aníta Hinriksdóttir: Setti Íslandsmet í 800 metra hlaupi á sínum fyrstu Ólympíuleikum í gær. Það dugði þó ekki til að hún kæmist í undanúrslit en hún bætti sig verulega. Varð í sjötta sæti í sínum riðli. Aníta hefur því lokið keppni í Ríó Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari hefur líka lokið keppni. Hún lauk keppni í Ríó í fyrrinótt en náði alls ekki þeim árangri sem hún stefndi að, varð næstsíðust af 31 keppanda.

Aðrir keppendur eru Guðni Valur Guðnason, frjálsíþróttamaður, sundfólkið Anton Sveinn Mckee, Eygló Ósk Gústafsdóttir og Hrafnhildur Lúthersdóttir, fimleikakonan Irina Sazonova og Þormóður Árni Jónsson júdókappi.

Hringbraut fer yfir þátttöku íslenska afreksfólksins og gengi þeirra á leikunum með Ívari Benediktssyni, þrautreyndum íþróttablaðamanni Morgunblaðsins.