Fimm látnir vegna ofneyslu í ár

Talið er að fimm manns hafi látið lífið á höfuðborg­ar­svæðinu það sem af er þessu ári vegna of­neyslu lyfja, en Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á Vogi segir sem svo virðist sem sterk eiturefni séu í meira mæli í umferð en oft áður.

Grím­ur Gríms­son yf­ir­lög­regluþjónn staðfesti í sam­tali við RÚV að fimm mál væru til skoðunar hjá lög­regl­unni þar sem grun­ur léki á að fólk hafi lát­ist af völd­um of­neyslu lyfja. Bana­mein fólks­ins hef­ur ekki verið staðfest.

Birg­ir Örn Guðjóns­son, eða Biggi lögga, greindi fyrst frá mál­inu á Face­book-síðu sinni: \"Vanda­málið er raun­veru­legt. Vanda­málið er hér í dag og það þarfn­ast víðtækra lausna. Spurn­ing­in er bara hvort við þorum og hvort við vilj­um?“ sagði hann á Face­book.