Fimm greindust með kórónaveiruna innanlands í gær, þar af voru tveir utan sóttkvíar. Þetta kemur fram á covid.is.
Þrír einstaklingar greindust með veiruna í fyrradag og var þar einn utan sóttkvíar. Á þriðjudag greindust fimm með veiruna, þar af tveir utan sóttkvíar, og á mánudag greindist einn með veiruna utan sóttkvíar. Fyrir það hafði smit ekki greinst utan sóttkvíar frá 19. maí.
Alls eru nú 41 í einangrun með virkt smit en þeim fjölgar um tvo milli daga. Þá fjölgar einnig einstaklingum í sóttkví en þeir eru nú 341 talsins. Rúmlega 1.600 sýni voru tekin til greiningar í gær. Á Landspítala er nú einn inniliggjandi vegna COVID-19 en enginn var þar í gær.
Alls hafa 91.893 einstaklingar nú verið fullbólusettir gegn COVID-19 og er bólusetning hafin hjá 79.483 einstaklingum til viðbótar. Í heildina hafa 171.376 einstaklingar fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni.