Fimm fyrirtæki hafa verið metin hæf til að byggja nýjan Landspítala við Hringbraut. Meðferðarkjarninn er stærsta byggingin í Hringbrautarverkefninu, en hann verður um 70 þúsund fermetrar.
Eftir yfirferð forvalsgagna hjá Ríkiskaupum vegna vegna uppsteypu á nýjum meðferðarkjarna við Hringbraut, hafa öll fimm fyrirtækin sem skiluðu inn þátttökubeiðni verið metin hæf til að taka þátt í útboði vegna uppsteypunnar. Gerðar voru lágmarkskröfur um fjárhagslegt og tæknilegt hæfi.
Þau fyrirtæki sem skiluðu inn þátttökubeiðni og voru metin hæf eru Eykt ehf, Íslenskir aðalverktakar hf, Ístak hf, ÞG verktakar ehf og samstarf fyrirtækjanna Rizzani De Eccher Island S.P.A, Rizzani De Eccher Ísland ehf og Þingvangs ehf.
Meðferðarkjarninn er stærsta byggingin á skipulagsreit Hringbrautarverkefnisins og í henni verður þungamiðjan í starfsemi Landspítalans. Gerðar hafa verið sambærilegar kröfur um aðbúnað í meðferðarkjarna og í nýjum háskólasjúkrahúsum í nágrannalöndum okkar. Meðferðarkjarninn er hugsaður út frá starfsemi bráða- og háskólasjúkrahúss, með áherslu á einfalt og skýrt fyrirkomulag ásamt greiðum leiðum milli starfseininga.