Fimm flokkar funda á morgun

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, sagði í síðdegisútvarpi Rásar 2, rétt í þessu, að fulltrúar fimm flokka fundi á morgun.

Auk VG eru það Píratar, Viðreisn, Björt framtíð og Samfylking. Katrín tók fram að formlegar viðræður séu ekki hafnar. Hún tiltók, sem það sem skilur flokkana helst að, séu skattamál.

Það reynir á á fundi morgundagsins hvort viðræðurnar haldi áfram og þá sem formlegar viðræður um myndun ríkisstjórnar.

-sme