Þrír þeirra þingmanna sem tóku sæti á Alþingi, að loknum kosningum, voru gestir í Laugardagsþætti Þjóðbrautar, í útvarpi Hringbrautar í morgun. Það voru þingmennirnir Andrés Ingi Jónsson, Vinstri grænum, Bryndís Haraldsdóttir Sjálfstæðisflokki og Pawel Bartoszek Viðreisn.
Andrés Ingi og Pawel voru nokkuð sammála um að flokkar þeirra, sem og Píratar, Björt framtíð og Samfylking, muni ná saman og úr verði ríkisstjórn þessara fimm flokka. Þeir sögðu báðir að margt væri á ólíkt með flokkum þeirra, það er VG og Viðreisn, en verði ríkisstjórn úr viðræðunum, muni þingmenn flokkanna fimm vinna samkvæmt því.
Bryndísi lýst ekki vel á að hér verði til fimm flokka ríkisstjórn og sagðist vantrúuð á að slík ríkisstjórn héldi út eitt kjörtímabil.
Af orðum þeirra Andrésar Inga og Pawel má gera ráð fyrir að línur fari að skýrast og meiri líkur, en minni, séu til að úr verði næsta ríkisstjórn.
Þeir sögðu báðir að flokkar þeirra hefðu nálgast hvorn annan hvað varðar skattamál.
-sme