Fimm flokka stjórn er fínt

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar settust niður með Sigmundi Eri og Lindu Blöndal og ræddu stöðuna eftir kosningar. 

Helga Vala taldi möguleika á samstarfi hvers sem væri en aðspurð hvort Sjálfstæðisflokknum væri treystandi að vinna að þeirri velferðarstefnu sem Samfylkingin aðhyllist taldi Helga Vala að þá yrði Sjálfstæðisflokkurinn að breytast. Ein af stóru tíðindunum væri að stjórnin hefði fallið og það ætti að skoða framhaldið í því ljósi. Helga Vala sest ný inn á Alþingi.

Lilja Dögg náði endurkjöri eftir 9 mánaða setu á þingi áður. Hún lagði áherslu á endurskipulagning fjármálakerfisins sem eitt af stærstu verkefnum nýrrar ríkisstjórnar. Fimm flokka stjórn gæti alveg eins ráðist í slíkt verkefni væri það vel skilgreint og skipulagt og taldi hún engan flokk útilokaðan í þeim efnum. Fjöldi flokka í ríkisstjórn skipti litlu máli.

 

Sérstakur þáttur um eftirleiki kosninganna er á dagskrá kl.20 í kvöld í umsjón Sigmundar Ernis og Lindu Blöndal