Fimm börn til viðbótar greinast með e. coli sýkingar

Um helgina greindust  fimm börn með sýkingar af völdum E. coli bakteríunnar. Börnin fimm hafa þó ekki greinst með alvarleg einkenni. Áður hafði verið greint frá því að fjögur börn höfðu greinst með sýkingar af völdum bakteríunnar og er heildarfjöldi tilfellanna því orðinn níu. Vísir greinir frá.

„Núna yfir helgina hafa greinst fimm börn til viðbótar þannig að þá eru börnin alls orðin níu sem eru komin á lista. En þessi börn sem greindust um helgina eru sem betur fer ekki alvarlega veik, þau hafa ekki greinst með alvarleg einkenni en þau verða áfram undir eftirliti og fylgst með hver þróunin verður. Hin börnin sem greindust eru á batavegi og eitt barn liggur enn þá inni á Barnaspítalanum,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við Vísi.

Öll börnin níu eiga það sameiginlegt að hafa verið á ferð um Bláskógabyggð undanfarnar vikur, auk þess sem þau eru öll búsett á höfuðborgarsvæðinu.

Enn er unnið að því að komast að uppruna smitsins. „Við eigum eftir að vinna betur úr þessum upplýsingum um þessi nýju tilfelli sem komu upp um helgina. Það er svolítil vinna að fá þá sýn á það og sjá hvar þessir sameiginlegu punktar barnanna liggja. Svo eru svona bakteríulógískar rannsóknir sem við þurfum að styðjast við þannig að þetta er allt í vinnslu og á meðan það liggur ekki alveg fyrir þá vill maður ekki mikið tjá sig um það,“ segir Þórólfur.

Hann bætir við að ekki sé tímabært að segja neitt um það á þessu stigi hvort líklegra sé að smitið komi úr matvælum eða vatni. 

Fólk getur smitast af E. coli bakteríunni með menguðum matvælum eða vatni, með beinni snertingu við dýr eða úrgang dýra.