Fimm af sjö bankaráðsmönnum hætta

Fimm bankaráðsmenn í Landsbankanum af sjö ætla að hætta í bankaráðinu. Ástæðan er átök um framtíð bankans, rimma við Bankasýslu ríkisins og skilyrði sem sett hafi verið fram um að Steinþór Pálsson bankastjóri muni víkja.

Í tilkynningu frá fimmmenningunum, sem eru þau Tryggvi Páls­son, Eva Sól­ey Guðbjörns­dótt­ir, Jón Sig­urðsson, Kristján Davíðsson og Jó­hann Hjart­ar­son, segir að Borg­un­ar­málið hafi verið bank­an­um erfitt. Banka­sýsl­an hafi að engu haft rök bank­ans fyr­ir und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd á söl­unni. Stjórn­ar­formaður Banka­sýsl­unn­ar hafi boðað formann bankaráðs til fund­ar með þau skilaboð að Steinþóri yrði að víkja frá auk formanns og vara­formanns. Banka­sýsl­an hafi gengið of langt og stjórnarfólkið muni ekki taka þátt í „skolla­leik sem hvorki sam­rým­ist meg­in­regl­um fé­laga­rétt­ar né góðum stjórn­ar­hátt­um.“