Kuldapollur er nú yfir hluta hálendis, Norðurlandi og víðar. Húsmælar sýndu 15 stiga frost þegar íbúar á Akureyri vöknuðu í morgun og gerðu sig klára fyrir daginn.
Eitthvað var um að bílar væru tregir til að fara í gang en á móti kemur að fólk sem Hringbraut ræddi við sagði morguninn sérlega fagran, stjörnur á lofti, algjöra kyrrð og stirndi á jörð sem brakaði í.
Færð er góð innanbæjar eftir ofankomu í gær.
20 stiga frost mældist í morgun í Sandbúðum og 17 stiga frost á Hveravöllum. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands gæti orðið allt að 10 stiga frost í Reykjavík á næstu klukkutímum en svo fer að draga úr kuldanum undir hádegi.