42,7% líkur eru á að sonur sjúklings á Vogi fari í meðferð. Þetta er niðurstaða rannsóknar á fjölskyldulægni fíknisjúkdóma sem Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi hefur kynnt innan SÁÁ.
Þórarinn segir að um tímamótarannsóknir sé að ræða, en þær voru unnar í samvinnu SÁÁ og Íslenskrar erfðagreiningar, en ritrýnd grein um niðurstöðurnar hefur nú fengist birst í virtu bandarísku vísindatímariti: \"Þarna fáum við staðfestingu á því sem við héldum, en fjölskyldulægnin er jafnvel enn meiri en mig hafði grunað,” segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, um niðurstöður viðamikillar rannsóknar sem SÁÁ stóð fyrir ásamt Íslenskri erfðagreiningu og bandarískum vísindamönnum á fjölskyldulægni alkóhólisma: \"Maður hefur aldrei séð þetta svona sterkt fyrr.”
Rannsóknin byggðist annars vegar á upplýsingum um þann hóp 19.000 sjúklinga sem hefur laggst inn á Vog síðustu þrjátíu ár og hins vegar á ættfræðiupplýsingum Íslenskrar erfðagreiningar.
Á grundvelli þessara gagna voru fjölskyldutengsl sjúklinga könnuð allt aftur í fimmta ættlið.
Fjallað hefur verið um niðurstöður rannsóknarinnar í bandaríska vísindatímaritinu Annals of the New York Academy of Sciences. Auk Þórarins eru höfundar greinarinnar þau Þorgeir E. Þorgeirsson, Frank Geller, Valgerður Rúnarsdóttir, Ingunn Hansdóttir, Gyða Bjornsdottir, Anna K. Wiste, Guðrún A. Jónsdóttir, Hreinn Stefánsson, Jeffrey R. Gulcher, Högni Óskarsson, Daníel Guðbjartsson og Kári Stefánsson.
\"Fjölskyldulægni þýðir að sjúkdómurinn eltir ákveðnar fjölskyldur,” útskýrir Þórarinn.
Það hefur löngum verið á almannavitorði hér á landi að alkóhólismi – líkt og margir aðrir sjúkdómar – leggist misjafnlega þungt á fjölskyldur. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þar er ekki bara um alþýðuspeki að ræða heldur vísindalegar staðreyndir.
Niðurstöðurnar eru sláandi. Út frá þeim má álykta að það séu 42,78% líkur á að drengur sem á móður, föður eða systkini, sem hefur leitað sér meðferðar á Vogi, muni sjálfur þurfa á innlögn á sjúkrahúsið að halda einhvern tímann á lífsleiðinni. Fyrir stúlkur eru líkurnar 22,08%.
Fyrir venjulegan Íslending, sem ekki á þessa ættarsögu, eru líkurnar á að þurfa að sækja sér meðferð við alkóhólisma inn á Vog einhvern tímann á lífsleiðinni 18,6% fyrir drengi en 9,6% fyrir stúlkur.
\"Miðað við aðra króníska sjúkdóma eins og til dæmis krabbamein er fjölskyldulægnin gríðarlega há. Ég held ég megi segja að það sé mjög sjaldgæft að sjá tölur upp á 2,3 í fyrsta lið,” segir Þórarinn.
\"Niðurstöðurnar sýna okkur hins vegar líka að þetta er arfgengt – og mun meira arfgengt en menn héldu,” segir hann.
Þótt fjölskyldulægnin sé meiri en menn hefðu getað látið sér detta í hug og rannsóknin veiti mikilvæg svör og vísbendingar er ekki búið að leysa gátuna um áhrif erfða og umhverfis á áfengis- og vímuefnafíkn segir Þórarinn en fjölskyldulægni er eitt og erfðir annað.
„Það eru til fullt af breytilegum þáttum í gengamenginu sem auka áhættuna á að menn verði fíklar.” Þar spili inn í fjölmargir erfðaþættir. Þess sé ekki að vænta að einhver ein rannsókn svari slíkum spurningum í eitt skipti fyrir öll.
Grafið sem birt er hér til hliðar sýnir hvernig fjölskyldulægnin birtist í sérstökum stuðli sem notaður er við útreikninga á fjölskyldulægni sjúkdóma (relative risk, RR). Hæsta súlan sýnir stuðulinn 2,3 fyrir fyrsta lið, þ.e. foreldra eða systkini, og hinar súlurnar frá öðrum til fimmta liðar. Eftir því sem skyldleikinn minnkar lækka tölurnar og súlurnar til marks um minnkandi fylgni. Í fimmta lið er talan 1,1 til marks um það að ákveðin fylgni sé enn til staðar fimm ættliðum frá sameiginlegum forföður eða formóður.
Sú lína sem hægt er að draga mili stöplanna í ritinu eftir því sem skyldleikinn verður minni og fjölskyldulægnin mælist veikari styður enn frekar við þá túlkun niðurstaðanna að um arfgengan sjúkdóm sé að ræða, að sögn Þórarins.
„Stöplaritið lítur út eins og það gerir þegar um arfgenga sjúkdóma er að ræða,” segir hann. Erfðaþættirnir sem hafa áhrif á alkóhólisma og fíkn séu hins vegar áreiðanlega mjög margir og margir þeirra séu fágætir.