Starfsmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald, grunaður um alvarleg brot í starfi.
Frá þessu segir Ríkisútvarpið og vitnar til traustra heimilda.
Upplýsingar um meint brot mannsins hafa legið á borði lögreglu um nokkurra vikna skeið.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu Rúv að hún geti ekki veitt upplýsingar um málefni einstakra starfsmanna.
Áður hefur verið greint frá öðrum lögreglumanni sem misnotaði vald sitt og aðstöðu og hafa kviknað spurningar hvort löghlýðni íslenskra lögreglumanna fari þverrandi.